Þetta hefur opnað dyr“: Reynsla háskólakennara sem rannsakenda eigin kennslu

Í greininni verður fjallað um rannsókn sem höfundar unnu meðal háskólakennara sem stunduðu diplómunám í háskólakennslufræðum á vegum Menntavísindasviðs og Kennslumiðstöðvar HÍ á árunum 2014–2016. Markmið diplómunámsins er meðal annars að efla kennslufræðilegar rannsóknir og fræðilega nálgun í háskól...

Ausführliche Beschreibung

Gespeichert in:
Bibliographische Detailangaben
Veröffentlicht in:Netla 2022-12
Hauptverfasser: Ólafsdóttir, Anna, Geirsdóttir, Guðrún
Format: Artikel
Sprache:eng
Online-Zugang:Volltext
Tags: Tag hinzufügen
Keine Tags, Fügen Sie den ersten Tag hinzu!
Beschreibung
Zusammenfassung:Í greininni verður fjallað um rannsókn sem höfundar unnu meðal háskólakennara sem stunduðu diplómunám í háskólakennslufræðum á vegum Menntavísindasviðs og Kennslumiðstöðvar HÍ á árunum 2014–2016. Markmið diplómunámsins er meðal annars að efla kennslufræðilegar rannsóknir og fræðilega nálgun í háskólakennslu og byggir námið á hugmyndum um fræðimennsku náms og kennslu (e. Scholarship of Teaching and Learning – SoTL). Í náminu glíma þátttakendur við að gera rannsóknir á sviði kennslufræða sem flestum er nýlunda. Tekin voru rýnihópaviðtöl við tvo hópa háskólakennara sem voru eða höfðu verið þátttakendur í háskólakennslufræði og reynsla þeirra af að vera rannsakendur eigin kennslustarfs könnuð. Helstu niðurstöður voru þær að þótt þátttakendurnir væru öll reyndir rannsakendur á sínum fræðasviðum fylgdu því þekkingarfræðilegar, aðferðafræðilegar og siðferðilegar áskoranir að fóta sig innan menntunarfræðanna. Í greininni verður gerð grein fyrir reynslu þátttakenda af náminu og þeim áskorunum sem þau glímdu við í rannsóknum sínum. Jafnframt verða niðurstöður ræddar í ljósi breyttra hugmynda og viðhorfa til formlegrar kennsluhæfni þeirra sem sinna kennslu á háskólastigi.
ISSN:1670-0244
1670-0244
DOI:10.24270/serritnetla.2022.88